Já þú segir nokkuð Ýmir.. Ég veit samt ekki, mér finnst ég hafa skánað síðan í gær. Og mig langar engan veginn að fara á enn einn pensilínkúrsinn. Held ég sjái hvernig þetta verður í fyrramálið, ef það heldur sömu stefnu þá neyðist ég líklega til að hitta lækni.
Þú getur einnig keypt nokkuð sem nefnist Strepsils, og hægt er að fá á ágætis verði í flestum betri lyfjaverslunum - bragðast einnig mjög vel. Síðan bregst gamli góði hvítlaukurinn sjaldan - ég mæli með því að þú tyggir eða gleypir 1-3 hvítlauksrif á dag. Það er vont (sérstaklega fyrir aðstandendur), en þrælvirkar.
Fyrst við erum í praktíska gírnum - o g spjallið snýr að kvefrekstri, (veit nú ekki með vírusinn þinn Björn minn) þá ljóstra ég upp því sem ég geri við kvefi, - það er að taka engiferrót, skrælda og bíta í, étta svosem eina á dag kannski? - það er ágætt, og ekki jafn slæmt fyrir aðstandendur.
Takk fyrir góð ráð Völundur. Ég á nú engiferrót hérna heima, kannske ég tékki á þessu. Svo er líka seyðið góða sem fólk mælir með, engiferrót, hvítlaukur og sítróna. Og blóðberg, vill Ingi hafa.
En þú gerir þér grein fyrir því að þú ert að kommenta á tveggja ára gamla færslu?
8 ummæli:
Pottþétt streptókokkar, mæli með læknisaðstoð. Fáránlega gott að taka pensilín, þá lagast þetta á nótæm.
--Ýmir.
Æ piff. Penisilín er fyrir homma og löggur.
Hei gaurar.
Já þú segir nokkuð Ýmir.. Ég veit samt ekki, mér finnst ég hafa skánað síðan í gær. Og mig langar engan veginn að fara á enn einn pensilínkúrsinn. Held ég sjái hvernig þetta verður í fyrramálið, ef það heldur sömu stefnu þá neyðist ég líklega til að hitta lækni.
Kostar bara morð fjár.
Þú getur einnig keypt nokkuð sem nefnist Strepsils, og hægt er að fá á ágætis verði í flestum betri lyfjaverslunum - bragðast einnig mjög vel. Síðan bregst gamli góði hvítlaukurinn sjaldan - ég mæli með því að þú tyggir eða gleypir 1-3 hvítlauksrif á dag. Það er vont (sérstaklega fyrir aðstandendur), en þrælvirkar.
- Atli
Takk fyrir ábendinguna.. kannast við nafnið, veit ekki hvaðan.
En ertu að tala um hvítlauksneyslu bara dagsdaglega, sama hvað bjátar á (eða bjátar ekki á), eða bara þegar maður er eitthvað veikur/slappur?
Meðan á veikindum stendur. Félagslega þá held ég að það sé best að halda neyslu á hráum hvítlauk í lágmarki. Lyktin ein ku drepa bakteríur.
-- Atli
Fyrst við erum í praktíska gírnum - o g spjallið snýr að kvefrekstri, (veit nú ekki með vírusinn þinn Björn minn) þá ljóstra ég upp því sem ég geri við kvefi, - það er að taka engiferrót, skrælda og bíta í, étta svosem eina á dag kannski?
- það er ágætt, og ekki jafn slæmt fyrir aðstandendur.
Gangi þér vel, vona að þú lagist

Skrifa ummæli