Sýnir færslur með efnisorðinu kápur. Sýna allar færslur

26 maí 2009
29 janúar 2009
Ég dæmi þessa bók af kápunni, líklega betur en hún á skilið
Það er orðið dálítið langt síðan ég birti skemmtilega kápu á þessari síðu. Hér er ein sem ég rakst á áðan, og ég tel að eigi rétt á ítarlegri umfjöllun allstaðar annarstaðar en hér. Þetta er Kvöldbók Línu:

Já hún Lína er eitthvað lokuð greyið, allar línur uppteknar eða blíðan utan þjónustusvæðis. En rauðhærða kvennagullið með bartana veit sko alveg hvernig á að taka á svoleiðis; handahreyfing segir meira en þúsund orð.
Smúð.
-b.

29 apríl 2008
Myndir og ráðleggingar fjöldamorðingja
Ég fékk myndasögupakkann minn í dag, jei. Böns af blöðum. Þar á meðal The Invisibles númer 16, þarsem Morrison sendir lesendum þessi skilaboð:

Það má vera að þetta sé til uppskrifað á netinu, eða jafnvel í mynd, en ég var með skannann við höndina..
Og svo rakst ég á enska þýðingu á Gauragangi núna áðan. Kápan er undarleg:

en ég held að hún hafi ekki komið út á ensku áður.
Svo fann ég hérna myndir af persónum úr The Wire, teiknaðar einsog þær séu í The Simpsons. The.. Wiresons? Nei. Æ. En hérna er ein:

Og smellið á myndina fyrir fleiri dæmi.
OG OG og, þetta er það besta síðan eitthvað í síðustu eða þarsíðustu viku:
Gaur skrifar bréf til fjöldamorðingja og annarra, þarsem hann þykist vera tíu ára gutti, og spyr þá ráða: Á hann að hætta í skólanum? Hvernig getur hann safnað sér fyrir seglskútu? Sá fyrsti heitir Richard Ramirez og er víst kallaður ,,The Nightstalker". Hann svarar stráksa á sérhannað bréfsefni með THE NIGHTSTALKER í hausnum. Mig langar að finnst það svalt en líklega er það bara óskaplega truflandi og hræðilegt og skuggalegt.
Það er svona upp og ofan hvað þeir hafa til málanna að leggja, morðingjarnir, en þótt þið nennið varla að lesa svonalagað þá er algert lágmark að sjá bréfið hans Charles Mansons. Sjúklegt. Og sjúklega fyndið.

12 mars 2008
Meintur ritstuldur hjá Vertigo
Ég leyfi mér að segja wtf.

Meira hér.
-b.
Unsurprisingly, the writer of Yorick, The Last Man On Earth was a woman: Sally Polenti, a trailblazer in the comics field and almost totally unknown today. Her work on Yorick is more soap-opera-ish, perhaps, than Brian K. Vaughan’s - but then again, she also doesn’t have any of those Trivial Pursuit factoids Vaughan seems compelled to insert into any and all narratives he writes. And if you thought Vaughan’s depiction of the longing between 355 and Yorick was hot - well, Polenti’s positively smolders. Plus, mad scientists in just about every issue. Girls Romance Comics went out of business in 1958, and most of its writers went into television writing, explaining why it’s now a footnote in comics history. Highly recommended.
Meira hér.
-b.
10 mars 2008
Fleiri kápur
..en bíðið við! Þetta eru ekki kirkjumyndir á reyfurum. Þetta er persónulegt. Það snertir mig sjálfan, líf mitt og úmf.
Hallur og Ingi Björn fóru til Parísar um daginn og skemmtu sér víst mjög vel. Þeir fóru að sjá opnunina á listasýningunni sem Frikki og kó voru að sýsla með Gelatín. Það var eitthvað í fréttunum um hana um daginn. Svo kíkti ég á Selfoss um helgina og hitti Hall, en hann rétti mér bók sem var gjöf frá þeim Inga:

Sem mér fannst algert æði. Ég var smá stund að fatta að þetta væri skáldsaga eftir einhvern Kerúak (hu?) en ekki ný saga frá Jason. Og ég hafði aldrei heyrt af því að Jason gerði bókarkápur. En þetta er þá hluti af nýrri línu frá Penguin. Penguin Classics Deluxe. Þarna má líka sjá kápur eftir Seth, Spiegelman og Chris Ware. Og Frank Miller:

Ég fann myndirnar hérna. Slatti af kápum.
En mér skilst að Pynchon hafi beðið sérstaklega um Miller. Þessi kápa sprengir nú ekki huga minn, en sú eftir Jason er gull. Og þegar maður opnar hana er brotið uppá kápuna og á brotinu eru myndasögurammar. Ætli það sé ekki til nafn á þetta kápubrot, þarsem stundum má sjá myndir af höfundunum o.s.frv.?
Allavega. Takk fyrir bókina gaurar. Ég skal reyna að lesa hana.. þúveist.. hérna. Bráðum. Eða næst?

21 nóvember 2007
Ný kápa úr gömlu klæði (kápu-pönn eru víst fyndin)
Ég sýndi þessa kápu um daginn. Þetta er franska þýðingin á Skugga-Baldri eftir Sjón.

Síðan rakst ég á þessa í dag, en það er sænska þýðingin á Jöklaleikhúsinu eftir Steinunnu Sigurðardóttur.

Hana fékk ég hérna á safninu, en það stendur ekkert um kápumyndina í henni.. hver tók hana, hvar eða hvenær. Þá fyrri hafði ég af netinu, og þá kemur slíkt náttúrulega hvergi fram.
Þær eru ansi líkar.

14 nóvember 2007
Snart, snart sagði rottan
Ég sýndi eina kápu með þessu lagi hérna um daginn, það var ein af Kalman-þýðingunum þýsku. En hérna eru þrjár í röð. Sveitarómantíkin blívur á þessum sem öðrum íslenskum krimmakápum, en hér er ekki nóg að stilla myndinni upp heldur er búið að ramma hana inn. Hver kápa er þá einsog uppstilling á smábæjarmynd, hver bók orðin að bláum dyrum inní íslenskt dreifbýlishimnaríki:

Jújú, þessi fyrsta er af Reykjavík, en hvað ætli þeir viti það.

09 nóvember 2007
Skugga-Baldur og svoleiðis
Mér datt í hug að skrifa ,,Skugga-Baldri verður kápan úr því klæðinu." En eru kápu-orðaleikir kannske þessi síðasti biti sem maður ætti að láta eiga sig?
Hérna eru að minnsta kosti kápur utanaf Skugga-Baldri. Byrjum á þeirri Íslensku:

Hér er færeysk:

Næst dönsk:

Þá finnsk:

Þýsk:

Frönsk:

Hollensk:

Og síðast ítölsk:

Þessi hollenska finnst mér nú síst. Hún er voða daufleg eitthvað.. blár himinn við hvítan snjó og skepna sem gólar. Þessi franska, sem gæti verið þýsk - með sínum gamla timburpalli við jökulvatn og það er svo kalt og úti og framandi - notar í það minnsta fallega mynd, þó ekki sé annað. Þessar skandinavísku brúka allar sömu kápumynd en breyta um letur og liti í titlinum, sem er alveg passlegt. Þú færð engin stig fyrir svoleiðis en það er heldur ekkert dregið af þér.
Þessi ítalska lítur út einsog plata með Björk. Eða myndband með Björk. Sem er aðeins sniðugri leið til að merkja sig Íslandi en að sýna mynd af kirkju uppá jökli. Hún er samt ekkert sérlega falleg.
Hérna koma þýskararnir hinsvegar á óvart. Hérna er ekkert hálendi eða jökull eða eyðibær eða rauðir sandar við fjallkot. Hálfur úlfur á hreyfingu og titill í hástöfum á kremhvítu baki. Kannske er það vegna þess að maður býst orðið við einhverri velgju úr þessari átt, en mér finnst þessi kápa mjög frambærileg.
Kallinn hefur ekki verið þýddur á fleiri tungumál svo ég viti.
...
Það hringdi í mig gamall kennari núna áðan og spurði hvort ég vildi vera í dómnefnd. Auðvitað geri ég það glöðu geði. Sýnið mér dótið ykkar og ég skal segja ykkur hvort það er nokkuð varið í það. Ég er dómari ykkar og böðull, og ekki endilega í þeirri röð! Ég skil hugverk rétt!
Annars eru tveir tímar eftir af vinnu. Dadaraí.
-b.
Uppfærð! Anna frá Noregi bendir á þessa norsku kápu:

Sem er vissulega frábrugðin þessum skandinavísku.. Ég skil nú ekki alveg hvað er á seyði á þessari mynd. Er þetta playmo-kall? Nú er kannske rétt að játa að ég hef ekki lesið bókina. Ef til vill meikar þetta perfekkt sens.
En þá vantaði mig líka þá sænsku, en sú stendur eins nálægt þeirri íslensku og hún mögulega getur.

Þá ætti þetta að vera komið. Ekki satt?

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)