Við Nanna fórum á Orð skulu standa í gærkvöld, í Þjóðleikhússkjallaranum. Það var mjög gaman. Skemmtileg stemning, einn lítill, bjór, krossgátuþrautir og kveðskapur og svona.
Í byrjun kvöldsins gaf stjórnandinn fyrri part:
Elskulega kæra króna,
við komumst ekki af án þín.
Ég man ekki hvað keppendurnir gerðu við þetta nákvæmlega, annað en að Guðmundur og Valgeir áttu einn, kannske tvo góða botna hvor en stilltu sig þó ekki um að lesa færri en fimm á mann.
Hér er það sem ég barði saman:
Elskulega kæra króna,
við komumst ekki af án þín.
Þú klyfjabykkja kaldra dóna
– kóna sem að sárir góna
austur e ess bé til zóna –
en auðnast ekki evran fín.
Þetta fer í þar-þar-þarnæstu ljóðabókina mína: Vísur hvorki tækar né færar.
Sýnir færslur með efnisorðinu ljóðskáld eru hálfvitar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu ljóðskáld eru hálfvitar. Sýna allar færslur
23 mars 2012
01 desember 2009
Vísa um mann og orð
Af gefnu tilefni (þ.e.a.s. að hægt er að skrifa um það) birti ég hér vísu sem ég orti á feisbúkksíðu Helga Bárðarsonar. Hún er að nokkru sannsöguleg, tilvitnunin er aktúal en aðstæðurnar sem ég dreg upp eru aðeins færðar í stílinn.
_____
Orð aldanna
Þjóðarskáld, um skuld og kvaðir,
skeleggur (en þvingaður)
sagði Guði og gumum ,,Það er
gott að vera elskaður."
_____
Mér finnst ekki við hæfi að merkja þetta ,,vinir mínir eru hálfvitar" einsog næsta ljóðabók á að heita, þannig að ég merki þetta titli gömlu bókarinnar. Það dugar.
-b.

08 ágúst 2009
Af Hjálmum
Varúlfar vega salt
og villidýrin útum allt
varúlfar, það er satt
þú þarft að reyna að drepa það allt.
-b.
og villidýrin útum allt
varúlfar, það er satt
þú þarft að reyna að drepa það allt.
-b.
20 janúar 2009
Baráttuljóð
Stríð?
Iss
Nei heyrðu nú mig
Hvað höfum við uppúr því?
Nákvæmlega
Ekki neitt!
Einu sinni enn.
Iss
Nei heyrðu nú mig
Hvað höfum við uppúr því?
Nákvæmlega
Ekki neitt!
Einu sinni enn.
24 apríl 2008
Í tilefni dagsins
(Sungið við lagið ,,Nú er sumar".)
Nú er sumar
gleðjumst sumar
gaman er í sumar
nú er komið sumar
sumarið er sumar
sumar sumar sum
ar sumar sumar.
Nú er sumar
gleðjumst sumar
gaman er í sumar
nú er komið sumar
sumarið er sumar
sumar sumar sum
ar sumar sumar.
14 apríl 2008
Ort á gemsann föstudagskvöld á Krús
Björn í glasi
bjór í bauk
vær í fasi
viskístauk
settist að
og súpti það
sem uppúr fauk
einsog dögg
af dælu grasi
Björn í glasi
bjór í bauk
bjór í bauk
vær í fasi
viskístauk
settist að
og súpti það
sem uppúr fauk
einsog dögg
af dælu grasi
Björn í glasi
bjór í bauk
22 febrúar 2008
Einróma lof gagnrýnenda
Doktor Sævar Öfjörð, ljóðunnandi og ljóðgagnrýnandi til margra ára** hefur nú birt umfjöllun um nýútkomna ljóðabók mína, Ljóðskáld eru hálfvitar. Þar kemur Sævar fram af mikilli næmni og innsæi, sýnir leiftrandi snilld í meðförum tyrfinna texta og brýtur jafnvel þéttustu ljóðmúra á bak aftur. Hann brýnir penna sinn og ræðst til atlögu, skilur að endingu líkingavirkin eftir í rústum og sýnir lesendum sínum hvað hýrist bakvið sleipa veggi ljóðlínanna.
Og umfram allt þá er auðséð að hann skilur ljóð rétt. Sem er meira en að segja það.
Mér þykir gaman að sjá framtakssemi þessa tiltekna gagnrýnanda og ég vona að fleiri af hans sauðahúsi sjái sóma sinn í því að sækja til mín ljóðabók og skrifa lofsamlega um hana í hvívetna.
...
Og þá er víst rétt að varpa hulunni ofan af þessari síðu. Kæru lesendur, þessi blóksíða hefur allan tímann verið dulin auglýsingaherferð fyrir þessa æðislegu ljóðabók. Með þessu móti hefur mér tekist að lokka til mín hálfan annan tug lesenda, og geri aðrir betur. Héðan í frá munu öll skrif mín hér miða að frekari dreifingu á þessu bókmenntaverki, allt þangað til ég kýs að gefa frá mér næstu ljóðabók, sem ber nú vinnuheitið Gagnrýnendur eru hálfvitar (en ekki hvað?).
Takk fyrir.
-b.
**Athugasemd: Sævar Öfjörð er ekki ljóðagangrýnandi til margra ára og er ekki með doktorspróf. Hann er tölvunarfræðingur og meðleigjandi undirritaðs.

02 febrúar 2008
Hún fer óðum að fyllast þessi æðislega ljóðabók
Krummi tekur krunkarann,
kallar á nafnara:
,,Ég fann hrútahöfðara,
hrygg og gærara.
Komdu og taktu kropparann með mér
Krummi nafnari.
Komdu og taktu kropparann með mér
Krummi nafnari."
(Heyrt í sjálfum mér á Kaffibarnum í gær.)

24 janúar 2008
Björn og hefðin
ah reykjavík reykjavík rýr á kolli engri lík
ást mín er einsog stál
sem hent er í bál
og mallar þar og heyrðu það tík
mín reykjavík
ást mín er einsog stál
sem hent er í bál
og mallar þar og heyrðu það tík
mín reykjavík
10 janúar 2008
we're so pretty
Þegar Víðir stígur útúr herberginu sínu á sunnudagseftirmiðdegi (eða komið inní aðfaranótt mánudags) þá skelfur hann gjarnan einsog hrísla í roki. Við höfum að sjálfsögðu gert hefð úr þessu einsog öðru, við spyrjum ,,ertu með skjálftann?" eða ,,varstu á Celtic?"
((Útúrdúr: það hefur komið uppúr kafinu að Víðir lendir inná Celtic á aðfaranótt sunnudags sama hvað hann er að gera og sama hvar hann er staddur. Nú er hann orðinn smeykur við að kaupa sér far til útlanda af ótta við að hann birtist einfaldlega á Celtic Cross klukkan hálfsex að staðartíma, og skilji farangur og ferðafélaga eftir í reiðileysi.))
Það er ekkert eðlilegra en það að gera grín að taugadauða og lifrarbilun. Og nú man ég ekki hver tilgangurinn með þessum skrifum var. Ætlaði ég ekki að leiða að einhverju? Þynnka og skjálfti, í þynnku er gott að sofa.. tja, það er nú ekki það sem ég ætlaði að rausa um, en kannske er það hægt samt.
Ég hef sofið vel og mikið síðan það sljákkaði í pestinni. Síðan á nýja árinu gat ég ósköp lítið sofið, ég var alltaf hóstandi og eitthvað vesen.. ef ég náði að festa svefn dreymdi mig tóma vitleysu svo ég var dauðþreyttur þegar ég vaknaði. En í gær svaf ég frá níu til að verða átta í morgun, og daginn þar áður var ég vakandi í níu, tíu tíma. Þetta er nauðsynlegt svo maður komist aftur á lappirnar. Sei sei.
Og ég er aftur kominn í vinnuna en það eru engar myndasögur hérna fyrir mig. Ég byrjaði á Ósýnilegum glæpum, sem er eftir einhvern gaur. Spánverja? Katalóna? Hermann Stefánsson þýddi a.m.k. Hún er fljótlesin en ekkert sérstaklega spennó, enn sem komið er. Ég er að vaða í gegnum Dexter in the Dark, klára hana kannske á leiðinni heim á eftir. Og ég er aðeins kominn inní Dermaphoria. En mig langar í myndasögur! Fjandinn.
Ah já. Nú man ég. Tölvan mín er í viðgerð. Ég er farinn að finna til fráhvarfseinkenna. Hvað geri ég þegar tölvan mín er í viðgerð? Sef mikið, jú. Fer til tannlæknis, ég er að fara austur til þess á eftir. Og hvað? Ég get ímyndað mér að ég vakni á sunnudagsmorgun, skjálfandi af tölvuleysi. Víðir kemur inní stofu skjálfandi og ég skelf með honum, við skjálfum af sitthvorum kvillanum en þó í hálfum takti.
Þetta er yrkisefni, blautur og ilmandi akur fyrir ljóðskáld hvarvetna.
Skjálf djöfuls skjálfti
tölvuleysi og þynnka
brr skjálf skjálf brr sjálf
Sko ég setti ekki k í síðasta skjálfið, svo núna er ljóðið um sjálfsmynd og hvað við þurfum að hafa inní okkur og í kringum okkur til að viðhalda ídentíteti. (Er þetta ekki miklu þægilegra, að hafa svona merkingarlykil strax á eftir ljóðunum? Monní monní.)

22 desember 2007
Hitt skemmtiatriði kvöldsins
(Það fyrra var náttúrulega ísskápur auðmannsins.)
Arnaldur kom fyrstur,
frægur eins og tré.
Hann ritaði um glæpi
og rakaði inn fé.
Eyvindur var annar,
með Ósögð orðin fín
Hann skreið ofan af Pala-hnjúk
og sýndi gullin sín.
Þórunn hét sú þriðja,
þá Erlu-Valdimars.
Hún krækti sér í Njálu
og steikti krimmafars.
Sá fjórði, Einar Kára,
var fjarskalega brók.
En fæstir voru sáttir
við Endurfundabók.
Sá fimmti, Óttar Norðfjörð,
var nauðalíkur Brown.
Með auglýsingafári
og helgigriparán.
Sú sjötta, Kristín Marja,
hét ekki Karítas.
En stöðugt verri titla
úr striganum las.
Sjöundi var Hugleikur,
sá var ósköp klúr.
Hann flissaði í rökkrinu,
og fékk sér vænan lúr.
Bloggþórinn, sá áttundi,
í Hliðarsporum söng.
Hann þrælaði við smásögu
sem var þrisvar of löng.
Níundi var Kalman, Jón,
frá kaupstaðarhysk-i
hann hentist út í bláan sjó
og blaðraði um fisk-i.
Tíundi var Gyrðir Elíss,
grályndur mann.
Úr són og taði málara
Sandána vann.
Ellefti var Bertelsson,
bölvaði í erg og gríð.
Og reiðilestri dældi
yfir dóp- og krimmalýð
Einar Már, sá tólfti,
tefldi kóng í hrók.
Sögu sína ársins leigði
læstri fangablók.
Þrettánda var Yrsa Sig,
úr Öskunni reis köld.
Hún Eyjamenni stráfelldi
á Aðfangadagskvöld.
Fljótlega í hillum
verður fennt í þeirra slóð.
En klisjurnar, þær fúnkera
í fylleríisljóð.
-b.
Arnaldur kom fyrstur,
frægur eins og tré.
Hann ritaði um glæpi
og rakaði inn fé.
Eyvindur var annar,
með Ósögð orðin fín
Hann skreið ofan af Pala-hnjúk
og sýndi gullin sín.
Þórunn hét sú þriðja,
þá Erlu-Valdimars.
Hún krækti sér í Njálu
og steikti krimmafars.
Sá fjórði, Einar Kára,
var fjarskalega brók.
En fæstir voru sáttir
við Endurfundabók.
Sá fimmti, Óttar Norðfjörð,
var nauðalíkur Brown.
Með auglýsingafári
og helgigriparán.
Sú sjötta, Kristín Marja,
hét ekki Karítas.
En stöðugt verri titla
úr striganum las.
Sjöundi var Hugleikur,
sá var ósköp klúr.
Hann flissaði í rökkrinu,
og fékk sér vænan lúr.
Bloggþórinn, sá áttundi,
í Hliðarsporum söng.
Hann þrælaði við smásögu
sem var þrisvar of löng.
Níundi var Kalman, Jón,
frá kaupstaðarhysk-i
hann hentist út í bláan sjó
og blaðraði um fisk-i.
Tíundi var Gyrðir Elíss,
grályndur mann.
Úr són og taði málara
Sandána vann.
Ellefti var Bertelsson,
bölvaði í erg og gríð.
Og reiðilestri dældi
yfir dóp- og krimmalýð
Einar Már, sá tólfti,
tefldi kóng í hrók.
Sögu sína ársins leigði
læstri fangablók.
Þrettánda var Yrsa Sig,
úr Öskunni reis köld.
Hún Eyjamenni stráfelldi
á Aðfangadagskvöld.
Fljótlega í hillum
verður fennt í þeirra slóð.
En klisjurnar, þær fúnkera
í fylleríisljóð.
-b.
05 desember 2007
Lesist ekki
En sko ég sit hérna og það er falleg stelpa hérna fyrir framan mig, ég sit með tjaldið í bakið og hún situr á því sem ég hef alltaf talið vera borðið mitt en það er allt í lagi hún má eiga það akkúrat núna því hún er með brúnt hár sem nær í sveig niður að augum og hún er með eitthvað nisti í langri keðju sem hangir milli brjóstanna og hún er þrýstin og mjúk og klædd í eitthvað sem maður gæti kallað síða peysu? Hún nær frá hálsi (með hettu), niður fyrir úlfliði og niður fyrir rass, hún er bæði með mjaðmir og læri, ég veit það því hún stóð upp áðan. Hún er með tómt vatnsglas fyrir framan sig, sem hún hefur troðið fullt aftur af mandarínuberki, hún er jólastelpa jólastelpa, með lítið nef sem vísar beint áfram, hún er ekki með lokka í eyrunum en samt örugglega með göt, hárið hárið það er tekið aftur í teygju en alls ekki í tagl því það vill ekki vera teglt. Við hliðina á glasinu er hún með fölappelsínugult pennaveski þarsem hún geymir allskonar allskonar eitthvað sem ég veit ekki hvað er en ef ég gæti smellt lásnum í sundur, þá myndi hún opnast fyrir mér, tölvan situr opin á borðinu og hún horfir oní hana, apple-merkið aftaná skjánum segir mér að ef hún væri í bíómynd þá myndi hún bjarga deginum, þessi hérna hún myndi sko ekki vera svikarinn eða morðinginn eða leigusalinn, hún snertir skjáinn einsog til að halda við hann, hún heldur utan um tölvuna sína, er gefandi og traustvekjandi, svo þrýstin með tvo hringi á fingrunum hún er hrúga af kjöti og beinum og fitu og silfri en það sem skiptir mestu máli er að þessi hrúga tekur pláss og maður getur fundið fyrir henni taka pláss, jafnvel þótt maður snerti hana ekki, maður finnur fyrir henni með augunum, án þess væri svæðið tómt, einsog glasið áður en hún fékk sér mandarínur með puttunum sínum með hringunum á og bar þá uppað munninum sem er rauður og mjúkur og kemur saman í krókum beggja vegna, samsíða línunni sem maður dregur í plássið með augunum þegar maður lítur á milli augnanna, frá hægri til vinstri og svo tilbaka og aftur tilbaka. Hún er með pilluglas við hliðina á vatnsglasinu og sprittkerti við hliðina á því, ég held að pillurnar séu mintur, eitthvað sem hún setur í munninn líka, þegar hún teygir höndina eftir því kippist nistið til og óróar í smá stund og hún færir til vaselíndolluna sem er við hliðina á tölvunni, hún er með vaselíndollu hún er með dollu af veselíni við hliðina á tölvunni og rólegur rólegur, þetta er eitthvað eitt í viðbót sem hún tekur með höndinni og ber uppað vörunum, það er ekki uppúr þurru og köldu og bítandi sem yfirborðið er svona borðleggjandi ég vil leggja hana á borð og skoða kjötið með fingrunum og hringjunum og brosinu undir augunum og nú dregur hún upp símann sinn því hún á síma einsog allir hinir sekkirnir en hennar er hvítur og opnast einsog ljósabekkur, og hún klípur eitthvað úr höfðinu á sér og setur það inní símann með höndunum og snýr sér svo aftur að tölvunni, hún fer höndum um tölvuna aftur og það er einsog að horfa á Maríu kjöt sitja í kofa og snerta kinnina á Guði kjöt, tveir pokar af próteini og nöglum að skiptast á heilagleik, þau eru tengd í gegnum hausinn og það er taska á stólnum við hliðina á henni því hún er að fara með vínflösku og brauðhleif uppí Þingholt, hún ætlar að henda því í rúmið þarsem kjötið liggur hún ætlar að kalla það einhverju sætu nafni með munninum og fingurnir sleppa flöskunni og hún sest í stólinn við rúmið og fæturnir fara uppúr skónum og hún setur þá uppá rúmgaflinn.
02 desember 2007
Guinness hækur
Ég hef óbilandi trú á Treo. Tvær töflur í vatnsglas breyta þynnkudegi í þægilegheit.
Ég hitti frænda minn á barnum í gær. Það gerist ekki oft.
En í fyrradag drukkum við Guinness og skrifuðum hækur um það. Nú skrái ég þær niður, svo höfuðstaður okkar það kvöldið hverfi aldrei:
Guinnessinn er tær
einsog blýfjall á svörtum
illviðrisdegi.
Froðuleifarnar
í höfði glassins míns og
blekið í tánum.
Stelpur með brjóst og
allskonar fá mig til að
gera allskonar.
Guinnessinn, ó já
ofinn úr gleði og þrá
ég sit einn á krá.
Gefðu mínum draft
úr geirvötrum guðanna
núna fanturinn.
Magni hættessu
melurinn þinn ég ætlað
drekkennan Guinness
sóló, þúveist einsog þú
slærð á tambúrínuna.
Mmm Mmm Mmm Mmm Mmm
Nammi nammi nammi namm
Brún leðja, svo góð.
Tígurinn sýgur
sálu úr gaurnum
á bar einum í miðbæ.
Olía lífsins
gefur mér ástæðu til að
ég drep ég er full.
Bjórinn er dauður
situr flatur og tómur
Guinnessinn drap hann.
Næsta Guinness krús
er vagina dentata:
beitt en bjóðandi.
...
Ég skrifaði hana ekki en ,,ég sit einn á krá" er besta ljóðlína síðan einhverntíman.

29 nóvember 2007
Vitleysingahækur
Ég samdi eina fyrir Helga á msn, og ég get því allteins haldið áfram útí bálk. Sumar eru betri en aðrar, og er það ekki í nokkrum tengslum við gildi einstaklinganna sjálfra, heldur er það til vitnis um leti mína sem hækusmiðs.
Helgi Bárðarson
vex og dafnar í Svíþjóð
einsog stór, svart naut.
Ýmir Sigurðsson
er víst frekar kallaður,
tja, Sigurðarson.
Víðir Örn, M.D.
hvorki læknir né doktor
heldur Mjög Dapur.
Hlynur Bárðarson
hann veit hvað snýr í norður
og hvað alls ekki.
Hr. Már Másson:
Ég heyrðí þér í síma
Þarna um daginn.
Gunnar Guðmundsson
keyrði mjólk uppað dyrum
til mín í vinnu.
Davíð Kjartan Gé.
Darbó ellegar Dýri,
eða Débeinov.
Egill Baldursson
tengir tæki með tengjum
og sem því tengist.
Stefán Guðmundsson
rautt skeggið sprettur, en hægt.
Kippan hún er mín.
Hafsteinn Viktorsson
lyftir lóðum og hampar
lítilli dóttur.
(en)
Bjarki Áskelsson
ætlar að vinna sigur
í Barneign Open.
Víðir fær aðra því hann var að senda mér sms:
Víðir Örn verslar
sér háskerpuflatskjától,
en seinna, seinna.
[Daginn eftir:] Davíð fær líka aðra því hann lagði orð í belg:
Davíð Ká Gestsson
í Kringlunni stendur og
selur biblíur.

16 nóvember 2007
Lokun maður
Hei hei allir góðir drengir! Korter í lokun, þaðan hálftími í brottför. Við skiljum hvað þið segið, við vitum hvað ykkur vantar, við könnumst við leiðina sem þið genguð hingað, en okkur er alveg sama. Klukkan slær í hálfan bjór og helgin er ekki gerð til að svara spurningum. Ekki gerð til að svara spurningum sem innihalda fleiri en fimm atkvæði. Við erum í kappi við tímann, það er vináttulandsleikur í gangi hérna minn kæri. Það þýðir að sigurvegarinn er bestur allra en til heiðurs honum er bannað að skora stig, bannað að reka boltann, bannað að stökkva uppí loft. Og bannað að banna hluti. Gerðu það sem þú vilt ef þú vilt það í raun og veru, en vertu reiðubúinn að ansa bæði Raun og Veru ef þær telja þig villtan. Þú mátt ganga villigötur aftur tilbaka, en við könnumst við þær líka, og þá er betur á kaffistofu setið. En heim farið. Átta mínútur í lokun og munið að skilja veskin ykkar eftir í vasanum, við eigum nóg af peningum en við getum aldrei verið viss. Við getum aldrei verið viss nema við berum okkur saman við færsluyfirlitin ykkar. Þið vigtið okkur og við vigtum okkur en vigtin skuldar ykkur pening og við vigtin erum svilar. Við vitum alveg hvernig í þessu liggur en það eru tvær mínútur í lokun og við verðum að skella hurðinni svo náttfuglarnir sleppi ekki inn. Sleppi ekki inn einsog annað fólk. Því við viljum annað fólk. Og ennþá meira þegar þau eru annarsstaðar, annarshugar og annarleg, því Anna er rjómakona og hún er að segja að nú lokum við.
25 október 2007
Kaffi
kaffi kaffi kaffi kaffi kaffi kaffi
kaffi?
kaff kaff kaffi kaff kaff kaffi kaffi á kafi í kaffi kaff kaff kafi í kaffi
á af kaffi á kafi í á af kaffi
(ekkert kaffi)
kaffi?
kaff kaff kaffi kaff kaff kaffi kaffi á kafi í kaffi kaff kaff kafi í kaffi
á af kaffi á kafi í á af kaffi
(ekkert kaffi)
16 október 2007
Andarblik, ég ætla að hætta í dagvinnunni minni..
ég
nei úbbs
ég ríð ekki feitum skilningshesti frá hliðum röksemdar þinnar.
nei úbbs
ég ríð ekki feitum skilningshesti frá hliðum röksemdar þinnar.
15 september 2007
Sungið við Bonnie Tyler lagið Total Eclipse of the Heart (800)
Víðir Örn, hvernig er að vera einsog fiskimaður sem að fer barasta aldrei í land?
Víðir Örn, hvernig veistu svona margt um átján hluti sem að enginn hefur hugsað mikið um?
Víðir Örn, hvernig ertu aldrei í sjónvarpinu þótt þú búir svona nálægt Sigga Hall?
Víðir Örn, hvernig skegg er þetta sem að hangir á veggnum því ég hef held ég aldrei séð það áður?
Víðir Örn, gaukur, hvernig er að ganga ekki við staf?
Víðir Örn, gaukur, hvernig er að ganga ekki við staf!

12 september 2007
Hæka fyrir vandláta
Rigningarandskot
i dettur svo maður blotn
ar allur saman.
-b.
i dettur svo maður blotn
ar allur saman.
-b.
10 ágúst 2007
,,Vel mælt, frændi."
évaraskrifa síví ég ætlasækjum vinnu aftur.
og það er hræðilegtað getaekkis ofnað þegar maður er að fara á skiptivaktþarsem maður skiptir nætursvefni útfyrir það að komastá morgunvakt.
ogsvo leséghluti og ég er að verðabrjálaður á sumu fólki.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)