Sýnir færslur með efnisorðinu vídjó. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu vídjó. Sýna allar færslur

31 mars 2010

Herramenn og sauðfé



Geoff Klock benti á þetta vídjó í umfjöllun um þarsíðasta Lost þátt, sjá hana hér. En tengingin við Lost er tæp og skiptir engu máli þannig séð.. Þetta er bara flott teiknimynd. Mjög róleg, húmorinn er ósköp settlegur, en lokaumskiptin, svona næstum í blálokin, eru óborganleg. Tékkitt. Bara sex mínútur.

-b.

15 desember 2009

Fyrir alla þá sem lásu Harry Potter, mig þarmeðtalinn

Og jú, við gætum kannske sett myndasögur inní þetta skema líka. Ekki bara fyrir krakka (lengur)!


Adults Go Wild Over Latest In Children's Picture Book Series

,,Sounds like it gets a little darker.."

-b.

19 nóvember 2009

Þeir eru heldur ekki númer

Yngvi frændi benti mér á þetta lag, sem er hugsanlega betri ,,aðlögun" en það sem ég reyndi að horfa á í gærkvöld. The Prisoner með Iron Maiden:



Það besta besta er að lagið er akkúrat 6 mínútur að lengd (skv. lagalistanum á plötunni).

-b.

12 nóvember 2009

08 október 2009

Aðeins úr sink vídjó dagsins



Ég held ég hafi aldrei heyrt síðasta lagið á disknum fyrren fyrst núna um daginn. Journey! Nemahvað?

-b.

04 júní 2009

Löggur (?) með regnhlífar

hindra myndatökur á tvítugsafmæli mótmælanna á torgi hins himneska friðar:

22 apríl 2009

Sumarið byrjar á morgun

Þessi snarbilaði hjólreiðamaður kemur manni í gírinn:

01 apríl 2009

Af svona hálfgefnu tilefni



(Samt betri útgáfa hér.)

Lagið er fyrst flutt í júní 2000.

Þessi gaur skotinn fjörutíu og einu sinni þann 4. febrúar 1999.

The Onion 28. apríl '99:

NEW YORK—New York City police commissioner Howard Safir issued a formal apology Monday for the accidental shooting-clubbing- stabbing-firebombing- choking-impaling- electrocution-lethal-injection death of a 38-year-old Jamaican immigrant in the Bensonhurst section of Brooklyn.

Robert Livingston, who had emigrated from Kingston last July, was surrounded and killed by 27 police officers on April 20 while standing on the stairs in front of an apartment building reaching for what the officers thought was a gun. The object turned out to be a doorbell.


-b.

16 mars 2009

You're my number one guy



Ég fattaði ekki að þessi lína væri tilvitnun í Batman hans Burtons fyrren ég sá gaurinn syngja hana í Jóker-búningi. Þetta þurfti til. Annars er það varla nema von, línan stendur ein og sér bæði í laginu og í myndinni.. það er einmitt það sem er svo flott við þá senu: Nicholson er einn með sínum helsta aðstoðarmanni, og apar þessa línu eftir Palance, sem sagði hana við Nicholson þegar þeir voru tveir einir. Þannig að enginn fattar brandarann nema Nicholson, ekki einusinni þessi eini gaur sem fær að sjá eftirhermuna. Jókerinn hans Nicholsons fær alveg nokkur prik fyrir þetta, hann er með furðulegan húmor og hefur líklega mest gaman af honum sjálfur.



Svo er lagið líka gott. Þetta eru flottir strákar.

-b.

19 febrúar 2009

Bon-bon Voyager.

Það er ekki svo ýkja langt síðan að byggingarskipulag samtala minna við annað fólk (og ekki síður sjálfan mig) skipti orðum og setningum út fyrir youtube-klippur.

Hallur er að fljúga til Parísar í fyrramálið, við hér á liðhlaupinu óskum honum góðrar ferðar að nýjum sið:



...

Í óskildum fréttum þá kláraði ég Anathem í kaffitímanum áðan. Hún er einstaklega skemmtileg, löng en fljótlesin. Ég tek meðmælarann. Fíla bækur um hugmyndir.

Er að hugsa um að kíkja á Cryptonomicon.

-b.

05 febrúar 2009

Meira meira

Já nei ókei, þessir þættir eru tær snilld. Mér er sama hvort þið hafið horft á TNG eða ekki. Hér er þátturinn Beard on Beard:



Hér eru þeir allir.

Kannske bara fyndið

ef maður hefur verið að horfa á haug af Star Trek TNG uppá síðkastið:



Mér sýnist þessi gaur hafa gert fleiri svona ,,þætti". Skoða seinna.

-b.

04 febrúar 2009

Vídjó fyrir mannfólk við tölvur

Horfið allavega þangað til lagið byrjar:



Það er bara eitthvað spes við það að sjá Darwin dansa við hipphopp.

-b.

Hjúkkett: The Freedom Version Edition

Undanfarnar vikur hefur læðst að mér sá grunur að lýðræðislegur grundvöllur samfélagins sé að molna undan fótum mínum. Þessi grunur ágerðist dag frá degi. En í dag sló af: ég kaus í stúdentakosningum on kampuss.

Mitt atkvæði verður talið! Ég er ekki númer!

(Þó svo að atkvæðið mitt sé í raun bara númer, eitt af fjölmörgum sem bætist inní ákveðinn dálk og keppir þar við önnur númer í öðrum dálki. Ég er samt ekki númerið sko, það er það sem ég á við. Ég er björn.)

Hversu kjánalegt er það samt að einkennisstafur Vöku sé A og Röskvu V?

Frekar kjánalegt.

Og!

Iceland is a frigid rock in the middle of nowhere that has gone bankrupt and gone gay: