03 október 2008

Gettógetraun

Hún Þórunn fór niður í geymslu áðan til að sækja gettóblasterinn minn, það vantaði mússík í stofuna. Hann var soldið tregur í gang en það hafðist á endanum. Og það var diskur í honum!

Getið nú hvaða diskur það var.

Já getið.

Allir mega vera með, nema Davíð.

(Sorrí Davíð það er komin hefð á þetta.)

-b.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Var það Korn eða Cake?

Vido

Björninn sagði...

Neibb, hvorugt.

Ég skal gefa vísbendó: þetta var nokkurskonar safndiskur.

Nafnlaus sagði...

enginn er eyland ?
viderio

[Davíð K. Gestsson] sagði...

Já já, allt í lagi bara...fokkjús líka.