Liðhlaup

15 janúar 2016

Hvers vegna hef ég ekki séð þennan brandara þúsund sinnum áður? Of augljóst?


Björninn kl. 15:01 Engin ummæli:
Deila

Fáfræði eftir Ernu Mist er fín byrjun en svona helmingi of löng. Þessi fannst mér góður.


Björninn kl. 13:16 Engin ummæli:
Deila

Það fjarstæðasta við Seaguy ævintýrið var sennilega sú hugmynd að þriðja bókin myndi nokkurntíma líta dagsins ljós. Fimm ár á milli fyrstu og annarrar, síðan eru liðin bráðum sjö. Am dek reader? #seaguy #seaguyeternal #herecomesmickeyeye #weawaitsilentmorrisonsempire


Björninn kl. 13:06 Engin ummæli:
Deila

07 janúar 2016

Ég var að hefja lestur á nýrri bók, Ef að nóttu ferðalangur, eftir Italo Calvino.


Björninn kl. 21:52 Engin ummæli:
Deila

06 janúar 2016

Efins um þessa nálgun. Það er alltaf frekar hæpið að stilla Listamanninum upp sér til hliðar við "hina"; "almenningur" er orð sem á bara að nota í pólitík; listamaðurinn ætti að læra að tjá sig annarsstaðar en akkúrat á safninu; og engum finnst spennandi að "læra að mynda tengsl". Þetta hljómar einsog lífsleikninámskeið í þrjúhundruð þúsund manna bekk, undir handleiðslu elítista sem er að læra á gjallarhorn. Það er líka eitthvað sovíeskt við framsetninguna, klausan er of löng og flókin til að hafa framan á byggingu.. Nú þegar ég segi það þá virkar þetta einsog hluti af sýningu frekar en einlæg skilaboð um hlutverk safnsins. Hvað er í gangi?


Björninn kl. 16:45 Engin ummæli:
Deila
‹
›
Heim
Skoða vefútgáfu

Þátttakendur

  • Björninn
  • Björninn
Knúið með Blogger.