29 janúar 2009

Ég dæmi þessa bók af kápunni, líklega betur en hún á skilið

Það er orðið dálítið langt síðan ég birti skemmtilega kápu á þessari síðu. Hér er ein sem ég rakst á áðan, og ég tel að eigi rétt á ítarlegri umfjöllun allstaðar annarstaðar en hér. Þetta er Kvöldbók Línu:



Já hún Lína er eitthvað lokuð greyið, allar línur uppteknar eða blíðan utan þjónustusvæðis. En rauðhærða kvennagullið með bartana veit sko alveg hvernig á að taka á svoleiðis; handahreyfing segir meira en þúsund orð.

Smúð.

-b.

6 ummæli:

  1. En kræst! Er hún Lína 12 ára eða hvað? Rauðhærða kvikindið er það allavega ekki, en hún gæti verið það.

    -Ingi

    SvaraEyða
  2. JÁ! Langbesta kápa síðasta flóðs.

    SvaraEyða
  3. Ef það er gras á vellinum Ingi.

    SvaraEyða
  4. Þá sendum við 22 fíleflda karlmenn inná völlinn til að spreyta sig og kannski einn lítinn dómara til að hafa reglu á þessu öllu, svo menn séu ekki að brjóta á hvor öðrum og svona. Svo er spurning hvort það er rangstaða með eða ekki.

    skuggi

    SvaraEyða
  5. Úff þið eruð ferlegir! Gras á vellinum! Dæma rangstöðu eftirá!

    -Ingi

    SvaraEyða
  6. Já.. Það vandræðalegasta við þetta allt saman eru innáskiptingarnar.

    SvaraEyða