01 júní 2006

Veikur

Án gríns. Ég er að DREPAST í kjaftinum. Það er mjög sárt að kyngja og geispa osfrv. Og mig klæjar í innanverðan hálsinn. Fokk.

8 ummæli:

  1. Nafnlaus1/6/06 07:20

    Pottþétt streptókokkar, mæli með læknisaðstoð. Fáránlega gott að taka pensilín, þá lagast þetta á nótæm.

    --Ýmir.

    SvaraEyða
  2. Æ piff. Penisilín er fyrir homma og löggur.

    SvaraEyða
  3. Hei gaurar.

    Já þú segir nokkuð Ýmir.. Ég veit samt ekki, mér finnst ég hafa skánað síðan í gær. Og mig langar engan veginn að fara á enn einn pensilínkúrsinn. Held ég sjái hvernig þetta verður í fyrramálið, ef það heldur sömu stefnu þá neyðist ég líklega til að hitta lækni.

    Kostar bara morð fjár.

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus2/6/06 00:23

    Þú getur einnig keypt nokkuð sem nefnist Strepsils, og hægt er að fá á ágætis verði í flestum betri lyfjaverslunum - bragðast einnig mjög vel. Síðan bregst gamli góði hvítlaukurinn sjaldan - ég mæli með því að þú tyggir eða gleypir 1-3 hvítlauksrif á dag. Það er vont (sérstaklega fyrir aðstandendur), en þrælvirkar.

    - Atli

    SvaraEyða
  5. Takk fyrir ábendinguna.. kannast við nafnið, veit ekki hvaðan.

    En ertu að tala um hvítlauksneyslu bara dagsdaglega, sama hvað bjátar á (eða bjátar ekki á), eða bara þegar maður er eitthvað veikur/slappur?

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus2/6/06 09:12

    Meðan á veikindum stendur. Félagslega þá held ég að það sé best að halda neyslu á hráum hvítlauk í lágmarki. Lyktin ein ku drepa bakteríur.

    -- Atli

    SvaraEyða
  7. Fyrst við erum í praktíska gírnum - o g spjallið snýr að kvefrekstri, (veit nú ekki með vírusinn þinn Björn minn) þá ljóstra ég upp því sem ég geri við kvefi, - það er að taka engiferrót, skrælda og bíta í, étta svosem eina á dag kannski?
    - það er ágætt, og ekki jafn slæmt fyrir aðstandendur.

    Gangi þér vel, vona að þú lagist

    SvaraEyða
  8. Takk fyrir góð ráð Völundur. Ég á nú engiferrót hérna heima, kannske ég tékki á þessu. Svo er líka seyðið góða sem fólk mælir með, engiferrót, hvítlaukur og sítróna. Og blóðberg, vill Ingi hafa.

    En þú gerir þér grein fyrir því að þú ert að kommenta á tveggja ára gamla færslu?

    SvaraEyða